Þessi síða tengist ekki söluaðilum CFMOTO. Umsjónarmaður hennar er aðeins mikill aðdáandi þessara hjóla og fannst vanta einhverja síðu þar sem myndir væru af þeim og reynslusögur :-)
Nýjasta nýtt
Nýjustu breytingar:

5.10.08: Myndband, blogg, og myndaalbúm sett inn sambandi við beltabúnaðinn.

20.5.08: Video sett inn

19.5.08: Nýtt blogg

9.5.08: Nýtt myndasafn myndir af breytingum

4.5.08: Nýtt blogg, nýtt albúm í myndasöfn.

20.4.08: Nýtt blogg, linkur á myndband sem ég gerði

14.4.08: Nýtt albúm;  rúntur seinnipartin í mögnuðu veðri!!

13.4.08: Nýtt albúm (fjórhjólarúntur)

12.4.08: Nýtt Blogg, þrjú ný albúm.
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

06.01.2010 17:35:23 / cfmoto

Nú er græjan til sölu!

Cfmotoið er nú til sölu, og ég veit ekki hvað ég þarf að segja um það: það er allt í myndasafni hvað ég hef gert við það. Það er keyrt í dag 4300km, annars óska ég bara eftir tilboðum.

Kveðja Hlynur S
8681380

» 19 hafa sagt sína skoðun

30.01.2009 18:27:23 / cfmoto

Sniðug lausn á prófíltengi

Rakst á þessa lausn einhverstaðar á netinu fyrir svolitlu síðan...


» 19 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 12:23:10 / cfmoto

Video af snjóruðningi

Jæja, setti inná  youtube video af hjólinu riðja stæðið. það má sjá hér:

 http://www.youtube.com/watch?v=d0e5o_rM6Ks


» 21 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 15:22:18 / cfmoto

Myndir frá snjótannamixi

Myndir komnar inn frá helginni....Hér til vinstri....myndasöfn...."snjótannamix"

» 18 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 23:22:46 / cfmoto

Allt komið í fína lag :-)

Vaknaði snemma í morgun og fór í viðgerðir og smíðar...rétti tönnina eftir slys gærdagsins og endursauð einhverjar festingar og svoleiðis....svo smíðaði ég ásamt frænda mínum sem er rennismiður "hæðar kóna" úr nyloni til að sitja á endana á tönninni til að hún leiti ekki alltaf niður þegar ég er að ryðja. Sit inn myndir á mánudaginn af þessu öllu saman.

En það er skemmst frá því að segja að nú svínvirkar allt og er ég búinn að vera að missa mig í snjóruðningi í dag.....og þetta er alveg hriiiikalega gaman...


» 18 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 22:18:48 / cfmoto

Alltí "klessu"

Jæja...ég vaknaði snemm í morgun til að fara að koma tönninni undir og það var kominn út að riðja uppúr hádeginu. Svo slitnaði vírinn á spilinu vegna núnings.....ég fór niður á verkstæði og setti Dynex ofurtóg á spilið og splæsti það "að ég hélt" á réttan hátt....allt klárt á ný...ég út að keyra....var á leiðinni uppí bæ á c.a 25-30km/klst....þá bregst splæsið á ofurtóinu og tönnin veður í götuna og þeytir hjólinu uppíloft að framan og hendi mér af (ekki alvarlega) og enda svon með tönnina undir sér.....þarna var ég miðri götu fastur á beltafjórhjóli með "undirtönn" svakalegt helvíti!!!! Ég held að ég hafi sloppið við miklar skemmdir,  tönnin er talsvert bogin og einhverjar festingar bognuðu...var bara heppinn að stórslasa mig ekki 8|  

En ég ætla reyna að koma mér snemma framúr í fyrramálið (sunnudagsmorgun) og vinna í því að koma þessu aftur í lag...rétta tönnina og endursjóða og rétta festingar....gaman að þvíííí....


» 19 hafa sagt sína skoðun

28.11.2008 07:47:55 / cfmoto

Hér er ekkert að gerast......EN BELTIN ERU KOMIN UNDIR AFTUR!!

Jæja ég setti beltin undir í gær.....svaaakaleg gaman. Er reyndar ekkert búinn að prófa neitt að viti bara svona innanbæjar og einhverja skafla og svoleiðis. Vonandi heldur bara allt áfram að fara í kaf ;)

» 17 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 22:52:37 / cfmoto

Bíll til sölu!!

Skoda Octavia Elegance 2.0L sjálfskiptur árg 2003 ekinn 72.000km. Ásett verð 950.000.kr fæst á 830.000kr. Stráheill bíll, allt nýtt í bremsum -bæði diskar og klossar. Upplýsingar hér í athugasemdum eða hlynursveins@gmail.com eða í síma 8681380


» 23 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 11:15:24 / cfmoto

Fyrstu prófunum lokið; komið myndband

Ég fór með hjólið á kerru uppí eina snjóinn sem nú er kominn og prófaði gripinn og allt gekk að óskum, það brotnaði ekkert og allt virtist fjaðra nokkuð þvingunalítið. En raunveruleikaþátturinn "leitin að hestöflunum" fær alveg nýja seríu og má búst við season tvö á því!!....þvílík afl-suga þessi belti enda ekki við öðru að búast þar sem hver belti er 25-30kg og mikil mótstaða í því að snúa þessu ferlíki. 
Eftir 20 mín prófanir dreif ég hjólið aftur niðrá verkstæði og tók búnaðin undan og setti dekkin aftur á og tók það um 40 mínútur.....það tekur semsagt 45 mín c.a fyrir mig að setja mekanísku vetrardekkin mín undir 8) Skoðið videóið af þessu....þetta er reyndar algjörlega óklipt útgáfa engin tónlist eða neitt...algjört ábyrgðarleysi...en ég bæti úr því seinna. P.S set líka inn nýjar myndir í albúmið þar sem sést þegar ég er að mixa þetta dót undir
 

 

Ef myndbandið sést ekki hér á síðunni þá má sjá það HÉR


» 21 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 22:58:50 / cfmoto

Jæja, nú er maður allur að koma til

Hæ!

Takk fyrir öll innlitin á síðuna! Það er ótrúlegt hvað fólk virðist nenna að kíkja hingað þótt ég drullist aldrei til að uppfæra.

En ég "lennti" í því um daginn að kaupa mér beltabúnað undir hjólið 8)

Ég rakst á auglýsingu á notuðum búnaði undan kawasaki hjóli á góðu verði þannig að ég gat hreinlega ekki slept þessu. Er búinn að vera að vinna í því hægt og rólega að koma þessu undir. Þurfti að byrja á því að smíða mér speisera útaf mismundandi gatadeilingu milli kawasaki og cfmoto. Þá er gott að eiga frænda sem er rennismiður ;)

Við smíðuðum þetta eitt kvöldið og síðan er ég búinn að vera að mixa festingar undanfarið og þetta er komið undir og búið að prufukeyra á malbikinu :) Þessi búnaður heitir tatou tracks og er ætlaður fyrst og fremst í snjó. Það verður spennandi að prófa þetta og gaman að sjá þegar maður verður kominn með tönnina á líka :-) En ég læt fylgja með myndir sem teknar eru í dag af hjólinu þar sem það stendur í á beltunum.


» 22 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 18:39:11 / cfmoto

Slæmar fréttir

Jæja ekkert fjórhjólageim á næstunni hjá mér, var í síðustu viku uppá sprengisandi og þar í kring í Hálendisgæslu Björgunarsveitanna......vorum með einn bíll og bæði fjórhjól sveitarinnar (Can-am) Það var alveg sjúkt!! Við keyrðum rúmar þúsund kílómetra á 6 dögum. En svo á miðvikudagskvöldið síðastliðið(24.7.08) lenti ég í óhappi með "tog-flugdreka" sem ég var að leika mér með og þetta óhapp skyldi mig eftir hryggbrotinn......ég togaðist á loft og skall síðan í jörðina aftur.....brotinn annar lendarliður....úff....nú tekur bara við sársauki, og rúmið  næstu vikurnar.......og ekkert fjórhjól næstu tjahh....4-5 mánuði veit ekki....

Kv Sá hryggbrottni,

» 25 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 18:41:46 / cfmoto

Jæja!! Ég er lifandi

Daginn daginn

Ég er lifandi í grunnmerkingu þess orðs en ekki lifandi í fjórhjólasportinu í augnablikinu. Ástæðan er mikil vinna.....það hefur ekki verið tími til neins nema að vinna. Ég reyndar sveik fjórhjólasportið á þriðjudagskvöldið og fór að sinna hinu stóra áhugamáli mínu (þau eru reyndar mikið fleiri en tvö) sem er Fisflug.....eða ekki "flug" ennþá en ég tveir aðrir brjálæðingar keyptum okkur fis sem við ætlum að reyna að fara aðlæra að fljúga á næstunni. Við fórum í það á þriðjudagskvöld að skipta út hjóla og bremsubúnaði vélarinnar og vorum reyndar að því langt fram á nótt.....en það tókst og er hún nú kominn á breiðari dekk, krómfelgur, og vökvabremsur. Hér eru nokkrar myndir frá þessu:


Gömlu hjólin og bremsurnar komnar undan.


Nýja nafið mátað á.


Hjólið komið á örðu megin, hinu megin má sjá gömlu hjólbörudekkin


Verið að sitja vökva á kerfið og lofttæma....rauði vökvin er ATF vökvi

Allt komið undir, og tími til að fara að lúlla....

Kannski að maður ætti að breyta þessu bloggi í almennt sport-blogg....hætta að fjalla eingöngu um fjórhjól.....spurning....allavega hef ég ekki frá neinu öðru merkilegu að segja í bili..

Kv Hlynur S

» 28 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 23:46:38 / cfmoto

Video frá youtube



Setti inn video frá youtube, sem samkvæmt lýsingu er 2008 útlit á cfmoto....svolítið skrýtið þar sem að þarna er ennþá gamla mælaborðið en breyttur framendi/framljós...ekki fallegra finnst mér!!

Kv Hlynur S


» 20 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 22:19:27 / cfmoto

Langt síðan síðast....


Jæja, það er búið að vera svo mikið að gera í vinnunni undanfarna viku að hér með viðurkennist að fjórhjólagengið fór ekki einn rúnt í heila viku! (fyrir utan daglega túra hjá mér úr og í vinnu)
Þetta er auðvitað glæpur að láta svona spyrjast svona út um sig :dEn það er helst að frétta að það er komið enn eitt nýtt fjórhjólið í bæinn þó ekki CFMOTO heldur Honda Rincon 680 TRX, -HÉR- má sjá gagnrýni um það. Magnað hjól sýnist mér og fær allstaðar góða dóma en stóri ókosturinn er auðvitað að það fæst ekki götuskráð.
Við Einar tókum okkur til á laugardaginn og  unnum aðeins í hjólunum, hann var búinn að rúlla sínu 150km þannig að það var kominn tími á að henda "innsiglinu" úr og skipta um allar olíur.

Framan og Aftan                  lll Einar kemur fyrir handahlífum
 

"innsiglispinnin" sagaður úr III      Kúplingshúsið hjá mér

Ég fór í það að skipta um reim hjá mér og Einar setti handahlífar á hjá sér. Síðan skelltum við okkur smá hring til að prófa kvikindið hans Einars eftir breytingar. Það virkaði mjög vel. Á Sunnudeginum kíktum við tveggja tíma rúnt um sveitina og nágrenni.

Litla, gamla hjólið hans Einar fékk að fljóta með og Jonni fékk það lánað í þessum túr


Fannardalurinn er skemmtilegt svæði sem "eigum" það er samt mjög viðkvæmt færi á öllum slóðum núna vegna bleytu. Þá verður maður að passa sig að fara varlega og koma ekki óorði á okkur fjórhjólamennina, því að við getum, ólíkt krossurunm:klikk: farið mjög hægt án þess að valda teljanlegur skemmdum á gróðri og öðru.
Að lokum læt ég eina mynd fylgja hér af hjólinu mínu og aðalkeppinaut þess sem vindur alla vasa og bankans þíns líka ef þér dytti í hug að versla þér svoleiðis8| HAHA
 Glæsilegt hjól Can-aminn og verður hvað sem hver segir kóngurinn í hjólunum um ókomna tíð ( eða hvað? )


Bless í bili

P.S ætla mér, næst þegar ég hef tíma að búa til annað video....læt vita af því hér til vinstri á síðunni þegar það gerist.


» 20 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 13:02:39 / cfmoto

Smáá færsla

Var að sitja inn nýtt albúm sem innheldur mjög fínar myndir í flottu veðri af hjólinu og einnig kommentaði ég fyrir neða myndirnar og taldi upp þær breytingar sem ég hef gert á því...Myndasafnið má skoða með því að smella HÉR
Nú eru heimsóknirnar komnar yfir 1000 sem er mjöög gott ;) Gaman væri að vita hverjir eru að skoða þessa vitleysu....hmmm hvernig væri nú að setja nafnið sitt bæjarfélag og kannksi hjóltegund(ef þú átt hjól) í athugasemdir hér að neðan? Það væri gaman að sjá það gert :d;)8|

Takk annars fyrir áhugan á bulli mínu :lol:

» 25 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 29786
Könnun
Hver eru bestu hjólin?







Linkar inná cfmoto síður